16.04.2012 09:18

Páskadagsmorgunn

Þórður Óli var lítið hrifinn af páskaegginu, vildi bara rúnta með bangsa.  Móðirin neyddist því til að sjá um eggið annað árið í röð!           
                                                                                                     

24.07.2011 16:42

Ljúfa líf :)

Gærdagurinn var yndislegur.  Fórum inn í Fannardal og grilluðum.  Þórður Óli kannaði flóru Íslands ásamt Hafsteini frænda og virtist hinn ánægðasti á meðan móðirin át og át.......og át!



20.07.2011 15:38

Pósturinn

...aftur á ferðinni, nema hvað :) 



19.07.2011 16:01

Pósturinn

Það var notalegt að rölta um bæinn í morgun.  Ekki skemmdi að bæði pokinn og þokan voru í léttari kantinum.  Þygg alveg fleiri svona daga takk.



02.07.2011 17:48

Spurðu hana ömmu þína

Mjúkt og skínandi fallegt hár?
Stappaðu hálfan banana og settu þrjár matskeiðar af ólífuolíu saman við.  Berðu þetta vel í þurrt hárið og láttu bíða í 10 mínútur.  Þvoðu svo hárið vandlega.

25.06.2011 15:37

Kaffispjall

Við Þórður Óli röltum upp í efra, í kaffi til Þóru frænku, þar sem öll heimsins mál voru rædd að vanda.  Hann sat eins og ljós í fanginu á mér og hlustaði af athygli.   Enda svo sem ekki hægt að vera með mikinn hamagang þegar stanslaust er verið að moka í mann t.d. grænmeti, ávöxtum, súkkulaði, kexi, kökum, ýmsum drykkjum og öðru sem ekki er þorandi að segja frá hér á þessari síðu! 
Núna sefur sá litli vært úti í vagni og meltir allt sem hann heyrði, sá og borðaði:) 

  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 28677
Samtals gestir: 10873
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 03:12:45